Fimm ára samningur á Stamford Bridge

Fikayo Tomori skrifaði undir fimm ára samning við Chelsea í …
Fikayo Tomori skrifaði undir fimm ára samning við Chelsea í dag. Ljósmynd/@ChelseaFC

Fikayo Tomori hefur framlengt samning sinn við enska knattspyrnufélagið Chelsea en félagið greindi frá þessu á heimasíðu sinni í kvöld. Samningurinn er til næstu fimm ára og gildir til 2024.

Tomori er 22 ára gamall varnarmaður en hann hefur byrjað ellefu leiki Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað eitt mark. Þá hefur hann fjórum sinnum verið í byrjunarliði Chelsea í Meistaradeildinni.

Hann eyddi síðasta keppnistímabili á láni hjá Derby í ensku B-deildinni þar sem Frank Lampard var stjóri liðsins. Chelsea er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 29 stig og þá er liðið komið áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert