Mun ekki svíkja Eriksen

Christian Eriksen
Christian Eriksen AFP

„Við eigum í mjög góðu sambandi sem byrjaði á fyrsta degi, ég ætla ekki að svíkja það traust sem er okkar á milli,“ sagði José Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, um samtöl sín við miðjumanninn Christian Eriksen sem er sagður vera á leið frá félaginu í janúar eða næsta sumar.

Daninn verður samningslaus hjá Tottenham í sumar og hefur sagt Mourinho að hann vilji vera seldur í janúar, annars ætli hann að fara frítt eftir tímabilið en Sky Sports greindi frá þessu. Mourinho segist hafa átt einkasamtöl við leikmanninn en vildi þó alls ekki gefa upp hvað þeir ræddu en Portúgalinn var að ræða við fjölmiðla á blaðamannafundi sínum fyrir leik Tottenham gegn Wolves á morgun.

„Ég veit að samningurinn hans rennur út næsta sumar og við áttum einkasamtöl sem ég mun ekki deila með neinum. Hann var heiðarlegur gagnvart mér og ég heiðarlegur gagnvart honum, samband okkar er mjög gott.“

Erik­sen kom til Totten­ham frá Ajax árið 2013 og á að baki rúm­lega 200 leiki fyr­ir fé­lagið í öll­um keppn­um. Erik­sen verður 28 ára gam­all í fe­brú­ar á næsta ári en hann á að baki 94 lands­leiki fyr­ir Dan­mörku þar sem hann hef­ur skorað 31 mark.

José Mourinho
José Mourinho AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert