Líklegastur til að taka við Everton

Carlo Ancelotti er þrautreyndur í faginu.
Carlo Ancelotti er þrautreyndur í faginu. AFP

Carlo Ancelotti er líklegastur til að hreppa starf knattspyrnustjóra Everton, sem leitar að arftaka Marco Silva, samkvæmt frétt Sky Sports.

Ancelotti var rekinn frá Napoli í síðustu viku en hefur frá fyrstu stundu þótt líklegur til að snúa aftur til Englands þar sem hann stýrði Chelsea á árunum 2009 til 2011. Eftir það hefur hann verið við stjórnvölinn hjá París SG, Real Madrid, Bayern München og nú síðast Napoli.

Everton hefur staðfest að Duncan Ferguson muni stýra liðinu gegn Leicester í deildabikarnum á miðvikudaginn en liðið hefur fengið fjögur stig úr tveimur leikjum í úrvalsdeildinni undir hans stjórn. Sky Sports segir að Ferguson verði áfram í þjálfarateymi Everton, verði Ancelotti ráðinn í starfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert