Eiður: Verið að staðfesta að Pogba fari í janúar (myndskeið)

Eiður Smári Guðjohnsen er sannfærður um að franski knattspyrnumaðurinn Paul Pogba muni yfirgefa Manchester United í janúar. Pogba byrjaði á varamannabekk United er liðið vann Newcastle í gær. 

Eiður greindi frá þessu í Vellinum á Símanum sport, en hann var gestur í þættinum ásamt Magréti Láru Viðarsdóttur. Tómas Þór Þórðarson er þáttastjórandni. 

Pogba hefur lítið spilað með United á leiktíðinni vegna meiðsla og segir Eiður að það sé verið að senda skilaboð með því að hafa miðjumanninn á bekknum. Þau skilaboð séu að hann muni fara frá liðinu. 

Þetta áhugaverða innslag um Manchester United má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert