Jóhann gæti spilað á Old Trafford

Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. Ljósmynd/Burnley

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, gæti spilað með Burnley á nýjan leik annað kvöld þegar lið hans sækir Manchester United heim á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni.

Jóhann fór meiddur af velli í bikarleik gegn Peterborough 5. janúar og hefur ekki spilað síðustu tvo leiki Burnley í deildinni en Sean Dyche knattspyrnustjóri sagði á fréttamannafundi fyrir stundu að góðar líkur væru á að hann kæmi aftur inn í hópinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert