Arsenal og Chelsea skildu jöfn, 2:2, í stórskemmtilegum lokaleik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Chelsea komst tvisvar yfir og lék manni fleiri í rúman klukkutíma, en tókst samt sem áður ekki að tryggja sér þrjú stig.
Flestir bjuggust við að mark Cézar Azpilicueta seint í leiknum væri sigurmark, en Héctor Bellerín jafnaði fyrir Arsenal skömmu síðar og 2:2 varð niðurstaðan.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.