Aston Villa stöðvaði sigurgöngu Watford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og vann 2:1 á Villa Park en þar skoraði Ezri Konsa sigurmarkið í uppbótartímanum.
Aston Villa komst úr fallsæti og í 16. sætið með 25 stig en Watford féll niður í fallsæti á ný með 23 stig í 19. sæti.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.