Tottenham vann nauman 2:1-sigur á Norwich í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Heung-min Son skoraði sigurmarkið á 79. mínútu. Sigurinn var sá fyrsti í deildinni hjá Tottenham á árinu.
Dele Alli kom Tottenham yfir á 38. mínútu með eina marki fyrri hálfleiks, en Teemu Pukki jafnaði á 70. mínútu úr vítaspyrnu. Tottenham átti hins vegar síðasta orðið því Son skoraði á 79. mínútu og þar við sat.
Tottenham fór upp í 34 stig og sjötta sætið með sigrinum, en Norwich er á botninum með 17 stig.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.