José Mourinho knattspyrnustjóri Tottenham gefur lítið fyrir fullyrðingar um að hans lið hafi verið heppið að dragast gegn RB Leipzig frá Þýskalandi í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en fyrri leikur liðanna fer fram í London annað kvöld.
„Jú, jú, við hefðum getað fengið þekktara lið. Barcelona og Real Madrid eru kraftmikil félög og með ótrúlega sögu á bak við sig en Leipzig er kraftmikið og gott lið, með góða leikmenn, og þeir eru að koma fram á sjónarsviðið sem nýtt lið sem á eftir að skrifa söguna sem stóru liðin eiga.
Þeir geta unnið Bundeslíguna og að þeir skuli vera búnir að vera þar í toppbaráttu í marga mánuði segir sitt um þá,“ sagði Mourinho á fréttamannafundi í dag.