Lampard sá við Mourinho (myndskeið)

Chel­sea vann afar mik­il­væg­an sig­ur á Totten­ham, 2:1, í fyrsta leik 27. um­ferðar ensku úr­vals­deild­ar­inn­ar í knatt­spyrnu. Liðin eru í harðri bar­áttu um meist­ara­deild­ar­sæti en eft­ir sig­ur­inn hef­ur Chel­sea 44 stig í 4. sæt­inu á meðan Totten­ham hef­ur 40 stig í 5. sæti.

Chel­sea komst í 2:0 með mörk­um Oli­vier Giroud og Marcos Alon­so í sitt hvor­um hálfleikn­um en hinn þýski Ant­inio Rüdiger varð fyr­ir því óláni að skora sjálfs­mark er hann fékk skot Eric Lamela í sig sem færði smá­vægi­lega spennu í leik­inn á loka­mín­út­un­um.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert