Wolves vann sannfærandi 3:0-sigur á Norwich í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Wolves er með 39 stig í áttunda sæti deildarinnar, tveimur stigum frá Evrópusæti, en Norwich vermir botnsæti deildarinnar með 18 stig.
Diogo Jota skoraði tvö mörk fyrir Wolves og er hann kominn með fimm mörk í síðustu tveimur leikjum.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.