Leikmaður United minntist systur sinnar

Odion Ighalo.
Odion Ighalo. AFP

Odion Ighalo, sóknarmaður Manchester United, minntist systur sinnar með hjartnæmum hætti í leik United og Club Brugge í Evrópudeildinni um daginn en systir hans lést í desember.

Nígeríumaðurinn kom til United í síðasta mánuði og var að byrja sinn fyrsta leik fyrir United sem tók á móti belgíska liðinu á Old Trafford í síðari viðureign liðanna í 32-liða úrslitunum.

Ighalo skoraði annað mark United í 5:0-sigri og fagnaði með því að sýna bol með mynd af systur hans, Mary Atole, sem lést á síðasta ári. „Ég missti systur mína í desember, við vorum mjög náin og hún var United-stuðningsmaður líka,“ sagði Ighalo við blaðamenn eftir leikinn en hann sjálfur studdi Manchester United sem ungur drengur.

„Ég lofaði sjálfum mér að tileinka henni hvert mark sem ég skora. Hún er þarna uppi að horfa á mig spila vel hjá United.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert