United fær botnliðið með sigri

Manchester City hafði betur gegn Sheffield Wednesday í kvöld.
Manchester City hafði betur gegn Sheffield Wednesday í kvöld. AFP

Dregið var í átta liða úrslit enska bikarsins í fótbolta í kvöld. Stórleikur umferðarinnar verður á heimavelli Tottenham, komist liðið áfram gegn Norwich í kvöld og Manchester United hefur betur gegn B-deildarliði Derby annað kvöld. 

Chelsea og Leicester eigast við á King Power-vellinum, en liðin hafa verið á meðal fjögurra efstu liðanna í ensku úrvalsdeildinni nánast allt tímabilið. Þá fá Arsenal og Manchester City leiki sem gætu reynst erfiðir á útivelli. 

Leikirnir fara fram helgina 20.-22. mars næstkomandi.

Átta liða úrslit enska bikarsins:  

Newcastle - Manchester City

Sheffield United - Arsenal

Norwich - Derby eða Manchester United

Leicester - Chelsea

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert