Enski knattspyrnuframherjinn Dominic Calvert-Lewin er í viðræðum við Everton um framlengingu á samningi sínum við félagið.
Hinn 22 ára gamli Calvert-Lewin hefur skorað 15 mörk í öllum keppnum í vetur, þar af fimm í síðustu sex úrvalsdeildarleikjum sínum, en Everton er í 11. sæti deildarinnar og hefur gengið vel eftir að Carlo Ancelotti tók við liðinu um síðustu jól. Ítalinn vill ólmur að Calvert-Lewin framlengi við félagið.
„Við erum í viðræðum við hann og ég vona að hann skrifi undir bráðlega, við viljum halda honum hér í framtíðinni,“ sagði Ítalinn á blaðamannafundi sínum fyrir leik Everton og Chelsea um helgina.
Calvert-Lewin skrifaði undir fimm ára samning í maí 2017, en hann mun hækka þó nokkuð í launum með nýja samningnum. Lið á borð við Manchester United fylgjast vel með framherjanum.