Alisson missir af grannaslagnum

Alisson er af mörgum talinn einn allrabesti markvörður heims og …
Alisson er af mörgum talinn einn allrabesti markvörður heims og hann er sá dýrasti. AFP

Liverpool staðfesti í dag að markvörðurinn Alisson yrði ekki tilbúinn í slaginn á mánudaginn kemur þegar liðið sækir Everton heim í grannaslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Alisson meiddist á mjöðm á dögunum og hefur misst af tveimur síðustu leikjum Liverpool og verður ekki með í seinni leiknum gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Þá er hann ekki í brasilíska landsliðshópnum sem valinn hefur verið fyrir tvo leiki í undankeppni HM síðar í þessum mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert