Knattspyrnumaðurinn Chris Smalling hefur gert það gott með ítalska liðinu Roma á tímabilinu en þar er hann í láni frá Manchester United út leiktíðina.
Nú herma fregnir frá Ítalíu að það vilji semja við miðvörðinn til frambúðar en Corriere della Sera greinir frá þessu. Smalling hefur spilað vel í ítölsku höfuðborginni og vill félagið endilega halda honum. Það gæti þó reynst hindrun að United er sagt vilja um 30 milljónir evra fyrir leikmanninn en hann er samningsbundinn Manchester-félaginu til 2022.
United er ekki tilbúið að selja hann ódýrt en Smalling, sem er orðinn 30 ára, er ánægður í Róm og tilbúinn að taka á sig launalækkun til að vera um kyrrt á Ítalíu.