„Mourinho klárar það sem ég byrjaði“

Mauricio Pochettino tók við Tottenham árið 2014.
Mauricio Pochettino tók við Tottenham árið 2014. AFP

Arg­entínski knatt­spyrn­u­stjór­inn Mauricio Pochett­ino segist ánægður með að José Mourinho hafi tekið við starfi hans hjá Tottenham en Portúgalinn tók við liðinu eftir að Pochettino var rekinn í nóvember.

„Ég hef þekkt hann lengi, hann er frábær þjálfari,“ sagði Pochettino um kollega sinn í viðtali við Sky Sports. „Ég var ánægður að skilja við félagið í góðu standi og ég er viss um að Mourinho er ánægður með hvernig við skildum félagið eftir handa honum.“

Pochettino hefur verið orðaður við Newcastle að und­an­förnu og þá var hann orðaður við Manchester United áður en Ole Gunn­ar Solskjær tók við. Hann segist vilja snúa aftur í úrvalsdeildina. „Ég elska Eng­land og ég vil búa áfram í London, en á sama tíma er ég op­inn fyr­ir öðrum lönd­um. Við sjá­um hvað ger­ist.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert