Framlengdi við Southampton

Ralph Hasenhüttl skrifaði undir samning sem gildir til sumarsins 2024.
Ralph Hasenhüttl skrifaði undir samning sem gildir til sumarsins 2024. AFP

Ralph Hasenhüttl, knattspyrnustjóri Southampton í ensku úrvalsdeildinni, hefur framlengt samning við félagið en þetta staðfesti Southampton á heimasíðu sinni í dag. Samningur er til næstu fjögurra ára og verður hann því hjá félaginu til sumarsins 2024 í það minnsta.

Hassenhüttl er 52 ára gamall Austurríkismaður en hann tók við liði Southampton í desember 2018 eftir að Mark Hughes var rekinn frá félaginu. Hann stýrði liði RB Leipzig í Þýskalandi áður en hann tók við Southampton og þá hefur hann einnig stýrt liðum á borð við Ingoldstadt og Aalen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert