Fimm skiptingar leyfðar

Marcus Rashford gerir sig klárann á hliðarlínunni í leik Manchester …
Marcus Rashford gerir sig klárann á hliðarlínunni í leik Manchester United. AFP

Heim­ilt verður að setja fimm vara­menn inn í leik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar tímabilið hefst aftur 17. júní eftir þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirunnar. Öll félögin samþykktu tillögu þess efnis í dag en reglubreytingin er tímabundin.

Þetta er í takt við breytingar sem flestar deildir í Evrópu hafa verið að setja til að hlífa leikmönnum sem nú snúa aftur á völlinn eftir langt hlé. Félögum verður áfram aðeins heimilt að stöðva leikinn þrisvar til að skipta leikmönnum sem og að nota leikhléið. Þá mega níu varamenn vera á leikskýrslu en ekki bara sjö eins og hefð er fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert