Manchester United vann sannfærandi 3:0-sigur á Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Var United töluvert betri aðilinn allan leikinn og lokatölurnar gefa rétta mynd af leiknum.
Bruno Fernandes var allt í öllu hjá United en hann skoraði tvö mörk. United er í fimmta sæti með 52 stig, tveimur stigum frá Chelsea sem er í fjórða sæti. Brighton er í 15. sæti með 33 stig.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr ensku úrvalsdeildinni í samvinnu við Símann sport.