Táningurinn frá í fjóra mánuði

Billy Gilmour sækir að Dennis Praet í leik Chelsea og …
Billy Gilmour sækir að Dennis Praet í leik Chelsea og Leicester. AFP

Hinn 19 ára gamli Billy Gilmour, leikmaður Chel­sea, verður frá í allt að fjóra mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné en stjórinn Frank Lampard staðfesti þetta á blaðamannafundi sínum í dag.

Gilmour fékk þungt högg á hnéið snemma í leik Chelsea gegn Crystal Palace í vikunni en hélt áfram þrátt fyrir það og var ekki tekinn af velli fyrr en á 80. mínútu. Skotinn ungi hefur staðið sig vel með Lundúnaliðinu upp á síðkastið, spilað 11 leiki á tímabilinu. Þá verður Chel­sea einnig án N'­Golo Kanté næstu vik­ur vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert