Villa-menn skoruðu tvö gegn Palace (myndskeið)

Aston Villa vann afar mikilvægan 2:0-sigur gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Villa Park í Birmingham í dag.

Það var Frakkinn Trezeguet sem skoraði bæði mörk Aston Villa í leiknum en þau komu í sitt hvorum hálfleiknum.

Leikur Aston Villa og Crystal Palace var í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Trezeguet fagnar öðru marki sínu gegn Crystal Palace í dag.
Trezeguet fagnar öðru marki sínu gegn Crystal Palace í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert