Chelsea styrkti stöðu sína í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með naumum 1:0 sigri á föllnu liði Norwich City á Stamford Bridge í London í kvöld. Markið og helstu tilþrif leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan.
Olivier Giroud skoraði sigurmark Chelsea í uppbótartíma fyrri hálfleiks með skalla eftir fyrirgjöf frá Christian Pulisic. Chelsea er komið með 63 stig og á tvo leiki eftir en Leicester og Manchester United eru með 59 stig og eiga þrjá leiki eftir. Tvö þessara liða tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu.