Í afar slæmum málum (myndskeið)

Raheem Sterl­ing skoraði tví­veg­is fyr­ir Manchester City þegar liðið vann stór­sig­ur gegn Wat­ford á Vicara­ge Road í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Leikn­um lauk með 4:0-sigri City en staðan að lokn­um fyrri hálfleik var 2:0, City í vil.

Er Watford nú komið í fallsæti og í afar slæmum málum fyrir lokaumferðina þar sem liðið mætir Arsenal. City hafði fyrir löngu tryggt sér annað sætið. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert