Ó, þú hrímhvíta móðir

Stuðningsmenn Leeds fagna úrvalsdeildarsætinu fyrir utan Elland Road. Í baksýn …
Stuðningsmenn Leeds fagna úrvalsdeildarsætinu fyrir utan Elland Road. Í baksýn er stytta af goðsögninni Billy Bremner. AFP

Eftir sextán ára hlé mun hið fornfræga félag Leeds United leika á ný í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð. Þökk sé hinum sérlundaða en farsæla knattspyrnustjóra Marcelo Bielsa.

Við hliðina á árunum þrjátíu sem Rauði herinn frá Liverpool þurfti að bíða eftir enska meistaratitlinum í knattspyrnu eru árin sextán sem Leeds United hefur mátt hokra í B- og C-deildunum auðvitað ekki neitt. Þegar maður pælir betur í því, þá er þetta eigi að síður býsna drjúgur tími. Leedsarar gætu til dæmis hæglega verið búnir að eiga barn, venja það af bleyju, ferma það og útskrifa úr grunnskóla í millitíðinni. Þetta er allt spurning um samhengi.
En það skiptir ekki nokkru einasta máli lengur; Leeds United er aftur komið þangað sem það á að vera – í úrvalsdeildina. Lengstu fjarveru liðsins frá deild hinna bestu í 101 árs sögu þess er loksins lokið.

Leeds naut velgengni á tíunda áratugnum; varð til að mynda Englandsmeistari veturinn 1991-92 undir stjórn Howards Wilkinsons, sem er síðasti Englendingurinn til að leiða lið til meistaratignar heima fyrir. Sturluð staðreynd. George Graham tók við 1996 og aðstoðarmaður hans, David O’Leary, tveimur árum síðar. Undir hans stjórn hafnaði Leeds aldrei neðar en í fimmta sæti og komst, sem frægt er, alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu leiktíðina 2000-2001 með blöndu af uppalningum úr akademíu félagsins og aðkeyptum leikmönnum. Má þar nefna Rio Ferdinand, Ian Harte, David Batty, Alan Smith, Harry Kewell og Mark Viduka.

En félagið reisti sér hurðarás um öxl fjárhagslega á þessum árum, í stjórnarformannstíð Peters Ridsdales, og þegar það rétt missti af meistaradeildarsæti tvö ár í röð syrti í álinn og illa gekk að standa í skilum. Selja þurfti bestu leikmennina og veturinn 2002-03 hafnaði Leeds í 15. sæti úrvalsdeildarinnar. Árið eftir var fall í B-deildina blákaldur veruleiki og þetta skemmtilega lið leystist endanlega upp.

Þurfti að selja völlinn

Við tók mikill galeiðuróður, þar sem Leeds neyddist meðal annars til að selja æfingasvæði sitt og sjálfan heimavöllinn, Elland Road, til að forða sér frá gjaldþroti. Í þrjú tímabil, frá 2007 til 2010, var það hlutskipti Leeds að leika í C-deildinni. Hver hefði séð það fyrir í upphafi aldarinnar? Hver stjórinn rak annan og ekkert gekk. Stuðningsmennirnir störðu bara hver á annan og spurðu niðurlútir: „Hrímhvíta móðir, hvar er þín fornaldar frægð, frelsið og manndáðin best?“

Engin ástæða er til að dvelja lengur við þær hörmungar en fyrir þremur árum tók land loksins aftur að rísa eftir að ítalski kaupsýslumaðurinn Andrea Radrizzani keypti félagið að fullu. Hafi einhver efast um heilindi hans í fyrstu hurfu þær vangaveltur eins og dögg fyrir sólu þegar Radrizzani keypti Elland Road aftur þá um sumarið.

Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa er með litríkustu knattspyrnustjórum þessa heims og …
Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa er með litríkustu knattspyrnustjórum þessa heims og gengst glaður við gælunafninu El Loco, eða sá geggjaði. AFP


Fyrstu stjórarnir virkuðu þó ekki, hvorki Thomas Christiansen né Paul Heckingbottom. Það var ekki fyrr en með ráðningu Argentínumannsins Marcelos Bielsa sumarið 2018 að liðið fór á flug. Radrizzani þurfti virkilega að reyna á þanþol buddunnar en Bielsa mun vera hæstlaunaði stjórinn í sögu félagsins enda stór biti, reyndur og eftirsóttur. Það hefur sannarlega borgað sig; á liðinni leiktíð komst Leeds í umspil um sæti í úrvalsdeildinni en laut í gras gegn Derby County. Á þessari maraþonleiktíð tóku menn hins vegar enga umspilsáhættu; unnu bara deildina með bravúr.

Bielsa hefur komið með aga, hugmyndaauðgi og umfram allt óbilandi vilja til Elland Road. Hann nær því besta út úr leikmönnum sínum. Orð Pauls Warnes, knattspyrnustjóra Rotherham United, segja mikla sögu en hann heldur því fram að Leeds sé ekki aðeins besta liðið í B-deildinni með boltann, heldur án hans líka. „Maður vinnur boltann aftur og þeir stökkva á mann eins og gammar og þvinga mann til að gera mistök. Fyrr en varir er þetta komið á sálina og maður tekur að lýjast.“

Hinn 65 ára Bielsa nýtur mikillar virðingar og í úrvalsdeildinni bíða stórlaxarnir spenntir eftir að reyna sig við hann. „Ég er svo heppinn að hafa tækifæri til að tala við hann og hitta annað slagið,“ sagði Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, við Sky Sports. „Hann er einstakur stjóri enda fær enginn annar lið sitt til að leika eins og hann. Enginn getur leikið stíl hans eftir og það gerir hann svo sérstakan. Það verður ótrúlegt að hafa hann í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og geta fræðst um hann frá fyrstu hendi.“

Nánar er fjallað um Leeds United í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert