Ekki hægt að sanna sekt City

Pep Guardiola er knattspyrnustjóri Manchester City.
Pep Guardiola er knattspyrnustjóri Manchester City. AFP

Enska knatt­spyrnu­fé­lagið Manchester City mun spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eftir að Alþjóðaíþrótta­dóm­stóll­inn dæmdi félaginu í hag eftir að UEFA hafði úrskurðað félagið í tveggja ára bann frá Evr­ópu­keppn­um fyr­ir brot á fjár­mála­regl­um í fe­brú­ar á þessu ári. Stefndi allt í að fé­lagið yrði því ekki í Meist­ara­deild­inni á næstu leiktíð.

For­ráðamenn City ákváðu að áfrýja úrskurðinum til Alþjóðaíþrótta­dóm­stóls­ins sem tók málið fyr­ir og ákvað að taka áfrýj­un enska fé­lags­ins til greina. Þá sektaði UEFA City um 30 millj­ón­ir evra vegna brot­anna en Alþjóðaíþrótta­dóm­stóll­inn hef­ur ákveðið að lækka þá sekt niður í 10 millj­ón­ir evra.

Dómstóllinn gaf í kvöld út 93 blaðsíðna skýrslu vegna málsins. Í henni kemur fram að ekki hafi verið hægt að sanna sekt félagsins og því hafi bannið verið dregið til baka. City var hins vegar sektað um 10 milljónirnar þar sem félagið þótti ekki samvinnuþýtt við rannsókn málsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert