Gæti skrifað undir í vikunni

Willian í baráttunni við Nemanja Matic á Wembley.
Willian í baráttunni við Nemanja Matic á Wembley. AFP

Willi­an, sókn­ar­manni enska knatt­spyrnu­fé­lags­ins Chel­sea, hefur heldur betur snúist hugur en ensku miðlarnir Sky Sports og BBC segja að hann muni endurnýja samning sinn við félagið í vikunni.

Bras­il­íumaður­inn verður samn­ings­laus hjá Chel­sea á næstu dög­um og voru allar líkur taldar á því að hann myndi róa á önnur mið. Voru m.a. Arsenal, Barcelona, Manchester United og In­ter Miami, knatt­spyrnulið Dav­ids Beckhams, nefnd til sögunnar.

Sókn­ar­maður­inn, sem er orðinn 31 árs gam­all, kostaði 30 millj­ón­ir punda en hann kom til enska fé­lags­ins frá Anzhi Mak­hachkala í Rússlandi á sín­um tíma. Willi­an hef­ur verið al­gjör lyk­ilmaður í liði Chel­sea und­an­far­in ár en hann hef­ur tví­veg­is orðið Eng­lands­meist­ari með liðinu, 2015 og 2017. Þá varð hann bik­ar­meist­ari með Chel­sea 2018 og Evr­ópu­meist­ari 2019. Willi­an á að baki 70 lands­leiki þar sem hann hef­ur skorað níu mörk en hann lék sinn fyrsta lands­leik árið 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert