Dramatík í London þegar Wilson jafnaði í lokin

Lucas Moura skorar fyrir Tottenham gegn Newcastle í dag.
Lucas Moura skorar fyrir Tottenham gegn Newcastle í dag. AFP

Callum Wilson tryggði Newcastle stig gegn Tottenham á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar hann jafnaði metin úr vítaspyrnu undir lok uppbótartímans, 1:1.

Vítaspyrnan var dæmd á Eric Dier sem fékk boltann í höndina utarlega í vítateignum og hún var dæmd eftir skoðun á myndböndum.

Tottenham stefndi í sigur en Lucas Moura hafði komið liðinu yfir á 25. mínútu eftir sendingu frá Harry Kane.

Tottenham og Newcastle eru nú bæði með fjögur stig eftir þrjá leiki í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert