Fyrstu stig Hamranna í húsi eftir stórsigur

Jarrod Bowen fagnar öðru marki sínu og West Ham í …
Jarrod Bowen fagnar öðru marki sínu og West Ham í kvöld. AFP

West Ham fékk sín fyrstu stig á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með sannfærandi sigri á Wolves, 4:0, á heimavelli sínum í Austur-London.

Jarrod Bowen skoraði fyrir Hamrana á 17. mínútu og aftur á 57. mínútu. Tíu mínútum síðar skoraði markaskorarinn öflugi hjá Úlfunum, Raúl Jiménez, sjálfsmark og þar með voru úrslitin ráðin. Sebastian Haller bætti loks við fjórða markinu með glæsilegum skalla í uppbótartíma leiksins.

Bæði liðin eru með þrjú stig eftir þrjár umferðir í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert