Hefndu ófarana á Wembley

Leikmenn Brentford fagna í kvöld.
Leikmenn Brentford fagna í kvöld. AFP

Brentford úr ensku B-deildinni fór illa með Fulham, nýliðana í ensku úrvalsdeildinni, á heimavelli er liðin mættust í 16-liða úrslitum deildabikarsins í fótbolta í kvöld. Urðu lokatölur 3:0, Brentford í vil. 

Hafði Fulham betur er liðin mættust í umspili um sæti í úrvalsdeildinni á Wembley í ágúst, en nú var Brentford mun sterkari aðilinn. 

Marcus Forss kom Brentford yfir á 37. mínútu og Said Benrahma bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik og þar við sat. 

Fulham hefur átt erfitt uppdráttar það sem af er leiktíð og fengið þrjú mörk eða fleiri á sig í öllum umferðum ensku úrvalsdeildarinnar til þessa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert