Sýnt beint frá Thamesárbökkum á mbl.is

Fulham tekur á móti Crystal Palace á Craven Cottage í …
Fulham tekur á móti Crystal Palace á Craven Cottage í London. AFP

Fulham og Crystal Palace mætast í sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Craven Cottage í London klukkan 14 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 13.30 með upphitun fyrir leikinn og er á sérvefnum Enski boltinn.

Þetta er nágrannaslagur í London og um stutt ferðalag að ræða hjá Crystal Palace úr Suður-London yfir á bakka Thamesárinnar í vesturhluta borgarinnar en um 13 kílómetrar eru á milli leikvanga liðanna.

Crystal Palace er með 7 stig eftir fimm leiki og er í fjórtánda sætinu en Fulham situr á botninum með aðeins eitt stig eftir fyrstu fimm leiki sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert