Jacob Murphy bjargaði stigi fyrir Newcastle þegar liðið heimsótti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Molineux-vellinum í Wolverhampton í dag.
Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en Murphy jafnaði metin fyrir Newcastle með marki úr aukaspyrnu á 89. mínútu.
Raúl Jiménez kom Wolves yfir á 80. mínútu með frábæru skoti utan teigs en ekki urðu mörkin fleiri og jafntefli því niðurstaðan.
Wolves er með 10 stig í sjöunda sæti deildarinnar en Newcastle er í fjórtánda sætinu með 8 stig.