Southampton getur farið á toppinn (myndskeið)

Southampton getur komist á topp ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið fær Newcastle í heimsókn í 8. umferðinni klukkan 20 í kvöld. Tómas Þór Þórðarson og Bjarni Þór Viðarsson fjölluðu um leikinn á Símanum Sport en klippuna má sjá hér að ofan.

„Þetta er ótrúlegt, þeir tapa fyrstu tveimur leikjunum og eftir það sá maður þetta ekki alveg,“ sagði Bjarni Þór en Southampton verður þó án markaskorarans Danny Ings í kvöld. „Við höfum oft talað um hvað þeir muni gera ef Ings meiðist en ekki hugsað það til enda. Ég sé ekki alveg hvað framherji á að gera það sem hann er að gera,“ bætti Bjarni við en klippuna má sjá hér að ofan.

Leikmenn Southampton fagna.
Leikmenn Southampton fagna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert