Mörkin: Brást bogalistin gegn Liverpool

Manchester City og Li­verpool gerðu í kvöld 1:1-jafn­tefli í stór­leik í ensku úr­vals­deild­inni í fót­bolta. Mörkin og helstu tilþrifin má sjá í spilaranum hér að ofan.

Li­verpool byrjaði af mikl­um krafti og Mo Salah skoraði fyrsta markið strax á 13. mín­útu úr víti eft­ir að Kyle Wal­ker braut klaufa­lega á Sa­dio Mané inn­an teigs. 

City svaraði af krafti og fékk nokk­ur færi áður en Gabriel Jes­us jafnaði á 31. mín­útu eft­ir und­ir­bún­ing hjá Kevin De Bruyne. Sá síðar­nefndi fékk svo gullið tæki­færi til að koma City yfir á 42. mín­útu en hann skaut fram hjá úr víti eft­ir að Joe Gomez fékk bolt­ann í hönd­ina inn­an teigs. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert