Kvikmyndastjörnur kaupa knattspyrnufélag

Ryan Reynolds er að kaupa knattspyrnufélag.
Ryan Reynolds er að kaupa knattspyrnufélag. AFP

Amerísku kvikmyndastjörnurnar Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru að festa kaup á velska knattspyrnufélaginu Wrexham sem spilar í utandeildinni á Englandi.

Félagið hefur verið í eigu stuðningsmanna síðan 2011 en þeir Reynolds og McElhenney segjast vilja breyta félaginu í „stórveldi“ sem og að þeir vildu „koma til Wrexham og drekka bjór með stuðningsmönnunum.“ Afgerandi meirihluti hluthafa samþykkti kaupin á hluthafafundi og bíða þeir félagar nú aðeins eftir því að enska knattspyrnusambandið heimili kaupin.

Samkvæmt Sky Sports munu þeir félagar fjárfesta um tveimur milljónum punda í félagið sem spilaði síðast í ensku deildarkeppninni árið 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert