Fór af velli eftir harkalegt samstuð

Gert að meiðslum Raúl Jiménez í leiknum í kvöld.
Gert að meiðslum Raúl Jiménez í leiknum í kvöld. AFP

Raúl Jiménez, framherji Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla, þurfti að fara af velli eftir sérstaklega harkalegt samstuð í leik Arsenal og Wolves, sem nú stendur yfir.

Atvikið átti sér stað eftir að Arsenal fékk hornspyrnu. Willian spyrnti boltanum inn á teig þar sem Raúl skallaði frá. David Luiz varnarmaður Arsenal fór af öllu afli í í skallaboltann og skallaði Raúl, sem lá óvígur eftir.

Virtist Raúl meðvitundarlaus eftir samstuðið og var gert að meiðslum hans í um 10 mínútur áður en hann var borinn af velli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert