Sýnt beint frá Manchester á mbl.is

Manchester City fær Fulham í heimsókn.
Manchester City fær Fulham í heimsókn. AFP

Manchester City og Fulham mætast í elleftu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Etihad-leikvanginum í Manchester klukkan 15 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn og er á sérvefnum Enski boltinn.

Manchester City er í 11. sæti deildarinnar fyrir leiki dagsins með 15 stig úr níu leikjum en Fulham er í 17. sætinu með 7 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert