Tvær vítaspyrnur voru dæmdar í Brighton í kvöld þegar Brighton & Hove Albion tók á móti Southampton í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
David Coote dómari leiksins dæmdi hendi á varnarmann Southampton og Pascal Gross skoraði út vítaspyrnunni og kom Brighton yfir á 26. mínútu.
Jannik Vestergaard skoraði með góðum skalla fyrir Southampton á 45. mínútu. Á lokakaflanum fékk Southampton vítaspyrnu eftir að atvik hafði verið skoðað í VAR.
Danny Ings skoraði úr vítaspyrnunni á 81. mínútu og Southampton náði í þrjú góð stig á útivelli.
Leikur Brighton og Southampton var í beinni útsendingu á Síminn Sport.