Gylfi hefur rifið upp Everton-liðið

Margrét Lára Viðarsdóttir og Eiður Smári Guðjohnsen ræddu um Gylfa Þór Sigurðsson þegar þau voru álitsgjafar Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum sport í kvöld. 

Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hjá Gylfa hefur hann verið fyrirliði í síðustu þremur leikjum, þeir allir unnist og íslenski landsliðsmaðurinn spilað vel. Margrét og Eiður fóru fögrum orðum um Gylfa.

Umræðurnar má sjá í heild sinni hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert