Engar fjöldatakmarkanir á toppnum

Mohamed Salah og Bruno Fernandes eru í algjörum lykilhlutverkum hjá …
Mohamed Salah og Bruno Fernandes eru í algjörum lykilhlutverkum hjá erkiféndunum, Liverpool og Manchester United, sem báðir ætla sér titilinn. AFP

Englandsmótið í knattspyrnu er nú hálfnað, að kalla. Nokkrir frestaðir leikir óleiknir. Vart má á milli efstu sveitanna sjá og útlit fyrir æðisgengnasta vormisseri í manna minnum, þar sem góðkunningjum og boðflennum ægir saman í samkvæminu. Guð almáttugur veri með okkur, dauðlegum mönnum!

Ekki einu sinni grjóthörðustu áhangendur Manchester United hefðu trúað því í byrjun nóvember að liðið þeirra ætti eftir að verða á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar Englandsmótið yrði hálfnað. Rauðu djöflarnir höfðu þá tapað enn einum heimaleiknum og möruðu í hálfu kafi í fimmtánda sæti. Menn sáu fram á tómt basl í vetur og jafnvel stjóraskipti fyrir jól. Dregið hafði ský fyrir Solskjær. Ekki bætti úr skák þegar United féll óvænt úr leik í Meistaradeild Evrópu.

En Eyjólfur hresstist svo um munaði í deildinni; af leikjunum þrettán sem síðan hafa verið háðir hefur United unnið tíu og gert þrjú jafntefli. Og, jú, jú, er komið á toppinn með 40 stig, þar sem stuðningsmenn félagsins fullyrða kinnroðalaust að það eigi lögheimili. Allt í einu er bara bragur á mannskapnum, Bruno Fernandes stýrir leik af listfengi eins og Daniel Barenboim á góðum degi og almenn gleði og bjartsýni er skollin á í Leikhúsi draumanna. Meira að segja Þyrnirós okkar tíma, Paul Pogba, er rumskuð af værum blundi. Gerði til dæmis gullfallegt sigurmark gegn Fulham í vikunni. 

Það sem meira er, flestir geta verið sammála um að United-liðið eigi talsvert inni – sem eru vond tíðindi fyrir önnur lið í toppbaráttunni. Því fer fjarri að það hafi verið að hundþeyta andstæðingum sínum undanfarið, samanber hófstilltan markamuninn, ellefu í plús. En það siglir sínum sigrum í land og um það snýst leikurinn.

Manchester City hefur læðst bakdyramegin inn í toppbaráttuna og lítur …
Manchester City hefur læðst bakdyramegin inn í toppbaráttuna og lítur vart um öxl úr þessu. AFP


City búið að skella í lás

Gatan er þó fráleitt greið fyrir Manchester United en samkvæmisglaði nágranninn, Manchester City, sem farið hefur með veggjum í vetur, eins og fyllibyttan forðum, er skyndilega kominn í annað sætið, tveimur stigum á eftir United og með leik til góða. City hefur líka verið á mikilli siglingu, unnið níu leiki í röð, þar af sex í deildinni. Skotgleði þeirra borgara hefur verið minni en í meðalári en 31 mark í 18 leikjum þykir ekki mikið á þeim bænum. Og kjöldráttur ekki lengur þeirra fag, alltént ekki í bili. Á móti kemur að vörnin, sem var eins og svissneskur ostur í fyrra, er orðinn þéttari en rasskinnarnar á Sylvester Stallone. Þökk sé portúgalska hvalrekanum Rúben Dias sem virðist hafa fyllt skarð Vincents Kompanys, eða Sigga féló, eins og hann er gjarnan kallaður í nýju blokkunum í Efstaleitinu. City hefur aðeins fengið á sig 13 mörk í deildinni, árangur sem er hreint afbragð. Þá hefur gamalt tröll tekið sig upp í John Stones sem jafnframt er byrjaður að skora mörk. Ekki amalegt að búa að verjanda sem heitir Jón Steinar.

Hey, gamli, heyrirðu ekkert? Jamie Vardy og James Maddison stefna …
Hey, gamli, heyrirðu ekkert? Jamie Vardy og James Maddison stefna alla leið með Leicester City. AFP


 Leicester City er jafnsett Manchester City í töflunni en hefur lakari markamun og búið að leika einum leik meira. Enginn skyldi afskrifa lærisveina Brendans Rodgers í baráttunni fram undan enda þótt spekingum þyki þeir ef til vill ekki líklegir til að endurtaka ævintýri allra ævintýra frá 2016 og lyfta meistarabikarnum. Leicester-liðið leikur skilvirka knattspyrnu og hver maður þekkir sitt hlutverk upp á hár. Og þrátt fyrir ítrekaða töflufundi um allt land hefur andstæðingunum enn ekki tekist að finna lausnina gegn Jamie Vardy. Gamli tófusprengurinn er kominn með 11 mörk í deildinn, nýorðinn 34 ára.

Blýi skipt úr fyrir púður

Meistarar Liverpool koma í humátt á eftir toppliðunum þremur, með 34 stig úr 19 leikjum. Það er rýrari uppskera en menn bjuggust við, ekki síst í ljósi þess að Rauði herinn gerði sig líklegan til að slíta sig frá hjörðinni fyrir örfáum vikum. Heldur hefur vélin þó hikstað að undanförnu.

Ekki hefur verið við vörnina að sakast sem ýmsir höfðu áhyggjur af í ljósi þess að miðverðirnir stráféllu á haustmisserinu, þeirra á meðal sjálfur hershöfðinginn Virgil van Dijk. Hún hefur eigi að síður staðið sína plikt, mönnuð af sveigjanlegum miðvellingum. Skytturnar þrjár í framlínunni hafa á hinn bóginn af óþekktum ástæðum látið blý víkja fyrir púðri upp á síðkastið. Öðruvísi mér áður brá. Mögulega brá þeim við að missa Jakob mennska, Diogo Jota, í meiðsli en hann rauk heldur betur upp úr rásblokkunum á Anfield. En í öllu falli, enginn á von á því að Liverpool fái færri stig í seinni umferðinni en þeirri fyrri, þannig að titillinn verður ekki látinn baráttulaust af hendi. Ljósið sem er tanngarðurinn hans Jürgens Klopps vísar veginn.

Kane og Son hafa farið hamförum fyrir Tottenham í vetur.
Kane og Son hafa farið hamförum fyrir Tottenham í vetur. AFP


Tottenham Hotspur hefur aðeins dregist aftur úr, eftir að hafa leitt hlaupið um stund. Er með 33 stig en á leik til góða. Kane og Son hafa slátrað hverju liðinu af öðru í vetur – án þess að svitna – og Fýlu-Móri, José Mourinho, er án efa búinn að teikna vormisserið upp af verkfræðilegri nákvæmni. Ekki yrði amalegt að halda upp á sextíu ára afmæli síðasta titils með nýjum titli.

Hamar með karamellusósu

Everton, eða Gylfi og félagar, eins og félagið heitir hér um slóðir, eru heldur ekki úr leik í toppslagnum. Eiga tvo leiki til góða og sigrar í þeim myndu færa þá karmellunga upp að hlið Manchester City og Leicester. Hvorki meira né minna. Gleymum því heldur ekki að Carlo Ancelotti kann að draga titilinn á land, rétt eins og hvern annan sjóbirting. Í augnablikinu er hann alla vega líklegri en liðið sem lét hann á sínum tíma fara, Chelsea, sem er þremur stigum og tveimur sætum neðar. Ekki einu sinni bjartsýnustu menn myndu treysta sér til að telja þá bláu með að þessu sinni.

Kemur Gylfi Þór Sigurðsson á óvart og verður enskur meistari?
Kemur Gylfi Þór Sigurðsson á óvart og verður enskur meistari? AFP


Biðjum við þá frekar um West Ham United. Já, segi ég og skrifa. Hamrarnir eru í sjöunda sæti, aðeins átta stigum frá toppnum, eftir æðisgengna Grettisglímu við falldrauginn Glám á liðnu sumri. Íslandsvinurinn David Moyes veit greinilega hvað hann er að gera.

Meistarartitill til handa West Ham myndi fá menn sem brotnir eru af bergi til að fella tár.

Gummi, hver er stuðullinn á Lengjunni?

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert