Tuchel nýr stjóri Chelsea

Thomas Tuchel er nýr knattspyrnustjóri Chelsea.
Thomas Tuchel er nýr knattspyrnustjóri Chelsea. AFP

Thomas Tuchel hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea.

Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum núna rétt í þessu en Sky Sports greindi  frá því fyrr í dag að Tuchel myndi stýra æfingu liðsins klukkan 18 í dag.

Tuchel, sem er 47 ára gamall Þjóðverji, tekur við liðinu af Frank Lampard sem var rekinn í gær.

Þjóðverjinn stýrði síðast liði PSG í Frakklandi en hann var óvænt rekinn frá félaginu í desember á síðasta ári.

Tuchel gerði Borussia Dortmund að bikarmeisturum árið 2017 og þá gerði hann PSG að Frakklandsmeisturum 2019 og 2020.

Hann hefur einnig stýrt Mainz á ferli sínum en hætti þar árið 2014 og tók við Dortmund 2015 eftir að Jürgen Klopp lét af störfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert