Enski boltinn í beinni - Óvænt tap United á heimavelli

Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Manchester United tapaði óvænt, 1:2, gegn botnliði Sheffield United þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þá gerðu Everton og Leicester jafntefli þar sem mistök Jordan Pickford kostuðu heimamenn sigurinn.

Brighton & Hove Albion og Fulham gerðu markalaust jafntefli í fallbaráttuslag.

Sömuleiðis var ekkert skorað í fyrsta leik Thomas Tuchel sem knatttspyrnustjóra Chelsea þegar liðið tók á móti Wolverhampton Wandererers.

Mestu skemmtunina var síðan að finna í frábærum 3:2 endurkomusigri Burnley gegn Aston Villa.

Mbl.is var með beina textalýsingu frá öllum leikjum kvöldsins sem má sjá hér fyrir neðan.

Enski boltinn í beinni opna loka
kl. 22:08 Leik lokið Síðustu tveimur leikjum kvöldsins er lokið. Sheffield United vinnur magnaðan 2:1 sigur gegn Manchester United og Everton og Leicester skilja jöfn, 1:1.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert