Mörkin: Skrautlegt sjálfsmark og VAR-víti

Antonio Rüdiger skoraði ansi slysalegt sjálfsmark þegar lið hans Chelsea vann botnlið Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hann jafnaði þá metin fyrir Sheff Utd eftir að Chelsea hafði komist yfir með góðu marki Mason Mount.

Örskömmu síðar fékk Chelsea þó víti eftir að Kevin Friend dómari hafði ráðfært sig við VAR-skjáinn. Jorginho skoraði úr því og það reyndist sigurmarkið.

Mörkin og allt það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert