Mörkin: Þjóðverjinn heldur áfram að skora

Ilkay Gündogan skoraði tvö mörk eftir að Rodri braut ísinn með marki úr vítaspyrnu er Manchester City jók forystu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með 3:0-sigri gegn Tottenham á Etihad-leikvanginum í dag.

City hefur nú unnið 16 leiki í röð í öllum keppnum og er með sjö stiga forystu á Leicester á toppi deildarinnar og þá er Þjóðverjinn Gündogan óstöðvandi, hann er búinn að skora 11 deildarmörk í 19 leikjum. Mörkin og öll helstu tilþrifin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert