Mörkin: Sex skoruð á Emirates

Sex mörk voru skoruð á Emirates-leikvanginum í kvöld er Arsenal tók á móti Leeds í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Heimamenn höfðu betur, 4:2, og skoraði fyrirliðinn Pierre-Emerick Aubameyang þrennu.

Arsenal náði fjögurra marka forystu þökk sé þrennu fyrirliðans og einu marki frá Hector Bellerín en gestirnir frá Leeds gáfust ekki upp og skoruðu tvö mörk, Pascal Struijk og Hélder Costa sáu um þau. Mörkin og helstu tilþrifin má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert