Mörkin: Stórbrotið mark Bruno dugði ekki

Bruno Fernandes skoraði stórbrotið mark fyrir Manchester United á Hawthorns-vellinum í dag er liðið mátti þó sætta sig við svekkjandi 1:1-jafntefli gegn West Brom sem situr í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Heimamenn tóku óvænt forystuna á annarri mínútu leiksins með marki frá Mbaye Diagne áður en Portúgalinn skoraði jöfnunarmarkið glæsilega. Bæði lið fengu svo færin til að kreista fram sigurmark en varnarmaðurinn Harry Maguire átti skalla í stöng úr nánast síðustu snertingu leiksins. Allt það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert