Þrettándi sigur City í röð

Raheem Sterling skorar sigurmarkið.
Raheem Sterling skorar sigurmarkið. AFP

Manchester City vann sinn þrettánda sigur í röð í ensku úvalsdeildinni í fótbolta er liðið lagði Arsenal á útivelli í dag, 1:0. 

Rahee Sterling skoraði sigurmarkið strax á annarri mínútu með skalla úr teignum eftir fyrirgjöf frá Riyad Mahrez. 

Þrátt fyrir mikla yfirburði og nokkur góð færi tókst City ekki að bæta við öðru marki gegn slöku Arsenal-liði sem skapaði lítið sem ekki neitt. 

City er með 59 stig og tíu stiga forskot á toppi deildarinnar. Arsenal er í tíunda sæti með 34 stig. 

Arsenal 0:1 Man. City opna loka
90. mín. Leik lokið Þrettándi sigur Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í röð. Sigurmarkið kom snemma leiks.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert