Mörkin: Skoruðu þrjú með vinstri

Leeds skoraði þrívegis í síðari hálfleik þegar liðið tók á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og vann 3:0. 

Öll mörkin í kvöld skoruðu Leedsarar með vinstri.

Patrick Bamford skoraði með hnitmiðuðu skoti út við stöng eftir stungusendingu frá Tyler Roberts og kom Leeds yfir á 47. mínútu eftir markalausan fyrri hálfleik. 

Eftir ágæta skyndisókn fékk Stuart Dallas boltann við vítateiginn og kom boltanum í netið. 

Þriðja markið kom beint úr aukaspyrnu en hana tók Brasilíumaðurinn Raphinha.

Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Síminn Sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert