Gylfi fyrirliði í kvöld

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliðinu og með fyrirliðabandið.
Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliðinu og með fyrirliðabandið. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem mætir Southampton á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 20. Gylfi ber fyrirliðabandið í fjarveru Séamus Coleman. 

Gylfi byrjaði á varamannabekknum í síðasta leik Everton; á útivelli gegn erkifjendunum í Liverpool, en hann kom inn á sem varamaður á 59. mínútu og gulltryggði 2:0-sigur með marki úr víti á 83. mínútu. 

Everton er í sjöunda sæti deildarinnar með 40 stig og fer liðið upp að hlið Liverpool í sjötta sæti með sigri. Southampton er í 14. sæti með 30 stig, sjö stigum fyrir ofan fallsæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert