Tileinkaði Alisson markið

Alisson Becker missti föður sinn skyndilega í síðustu viku.
Alisson Becker missti föður sinn skyndilega í síðustu viku. AFP

Curtis Jones var á skotskónum fyrir Englandsmeistara Liverpool í knattspyrnu um helgina en hann tileinkaði Alisson Becker, markverði liðsins, markið í leikslok.

Alisson missti föður sinn í síðustu viku en José Becker lést af slysförum þegar hann drukknaði í stöðuvatni í suðurhluta heimalands síns Brasilíu.

Af þeim sökum var Alisson ekki í leikmannahópi Liverpool í gær en Liverpool vann 2:0-sigur gegn Sheffield United á Bramall Lane í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta var fyrsti sigur Liverpool í deildinni síðan 31. janúar en fram að leik gærdagsins hafði Liverpool tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum.

„Þetta hefur verið erfitt hjá mér sjálfum og öllu liðinu undanfarnar vikur,“ sagði Jones í samtali við Sky Sports í leikslok.

„Ég vil nota tækifærið og segja að þetta mark var fyrir föður Alissons. Megi hann hvíla í friði.

Ef þú sérð þetta Ali þá var þetta mark fyrir þig,“ bætti Jones við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert